Sigurbjörg Viðarsdóttir

Lífið og tilveran í Horsens

26.05.2008 11:27:42 / Sigurbjörg

25. maí

Í gær, 25. maí átti elsku besti stóri strákurinn minn afmæli, orðinn 7 ára! :d



Ég hringdi í hann í gær og það fyrsta sem hann sagði við mig var: Ert búin að fæða barnið? :lol::lol: Hehehe hann er svo mikill snillingur :haha: Ég sagði nú við hann að hann myndi vera hérna þegar barnið kæmi .. ;) En hann varð semsagt 7 ára í gær, fékk svaka flott hjól frá ömmu sinni og afa :d

Svo var mamma hans, Mæja að brillera í skólanum sínum á laugardaginn, kláraði þá önnina með glæsibrag, ekki að spyrja að öðru ;) Svo fór mamma og pabbi suður og var hjá þeim, frekar mikil öfund í gangi og soldið mikil heimþrá .. En ég tók það út og við þrifum íbúðina frá A-Ö og hún er ekkert smá hrein og fín núna :d Vorum bara allan gærdaginn að, ekkert smá dugleg sko!!

En núna er júní bara að fara að koma .. Tíminn styttist alltaf, er orðin spennt að koma heim með litla guttann, vorum aðeins að skipuleggja hvernig þetta á að vera inní herbergi í gær, bara gaman að því, maður verður að hafa eitthvað að gera :haha:

Guðbjörg hringdi í mig í morgun og sagðist vera komin með íbúð hérna, ekkert smá spennó!! Ég hlakka svooooooooooooo til að fá hana hingað :haha: Bara skemmtilegir tímar framundan !!!

Ætla að fara og fá mér að spise og horfa á Dr. Phil ;)

Sigurbjörg

Unnur skrifaði
það eru bara endalaus afmæli :D
það eru bara allir sem eiga afmæli í maí ;)

það þýðir ekkert annað en að skipuleggja þetta allt saman ;)
ertu búin að fá kommóðuna ?
fyrir öll fötin hans lilla?


eeen já ég hlakka alveg mjög mikið til að sjá litla krílið ;)

þarf að fara að blogga um ferðina til DK hehe... þarf bara að fara að redda netinu!!

en við heyrumst gamla geit :D

Love Unnur
Solla skrifaði
hæ sæta! innilega til hamingju með stóra frændann :) ohh ég væri alveg til í að kíkja til ykkar elsku frænka,,,hugsa samt að nýja vinnan í brúðarkjólaleigunni leifi það ekki :( en ég sendi þér hlýja strauma og shopping strauma líka..á nóg til af þeim hehe. sendi þér RIISAKNÚS og hafðu það sem best. heyrumst þín Solla
Sissa skrifaði
Jájá þetta er afmælismánuðurinn ;) Flestir eiga afmæli þarna hehe
Nei ekki búin að fá kommóðu :( Hef ekkert pláss undir þetta dót allt saman.... Ohh frekar pirrandi að vera að troða þessu einhversstaðar, vil fá að fá þetta allt fínt hérna :) En vonandi fer þetta að koma
Já farðu nú að redda netinu kona!!
Hlökkum líka mjög mikið til að sjá þig ;) Langar að fara að enda þessa meðgöngu fljótlega hehehe og koma mér heim!!!!


Takk fyrir það :)
Já það er alltaf gaman að fá gesti .. hehehe en þú kannski kemur fyrir jólin í jólainnkaupin ;) ert allavega alltaf velkomin :) Við sjáumst svo pottþétt í desember þegar ég kem heim :D
Já ég er sko komin í langa shopping pásu (eða bann) hehe er búin að ákveða að fara í það bara í júlí :) ekkert þennan mánuðinn! :D
En takk fyrir það, veitir ekki af straumum í júlí hahaha
Eygló Amelía skrifaði
Hæ skvísí .. langaði bara að kasta kveðju á þig ;) hlakka til að sjá ykkur aftur og sjá litla krílið :D

btw - Rosa flott á þér hárið Sissa ;)

fullt af kossum og rembiknúsum :*

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 30 október