Sigurbjörg Viðarsdóttir

Lífið og tilveran í Horsens

14.10.2008 16:18:28 / Sigurbjörg

Nei hættu nú alveg...

Við erum enn á lífi ef þið hafið verið að velta því fyrir ykkur .. ;) Erum ekki orðin hungurmorða eða farin að selja nýra eða eitthvað, við erum sprelllifandi og hress og kát bara þannig séð þrátt fyrir þessa miklu kreppu þarna á klakanum! Þetta er allt saman með ólíkindum og all svakalegt, maður ætti auðvitað ekki að vera að grínast með þetta því það hafi margir misst helling og vonandi verður eitthvað bætt .. En tíminn verður að leiða þetta í ljós
Svo er búið að loka Dankortum hjá um 1.000 Íslendingum á Fjóni .. Maður hálf skammast sín fyrir að vera Íslendingur, ætli manni verði hent út úr búðunum hérna einn daginn :lol: Og spurning um að pakka ullarvestinu og ullarpeysunni bara ofaní kassa ... Neinei maður má ekki hugsa svona, þó að einhverjir kallpungar séu að koma okkur í þetta að þá erum við nú enn Íslendingar ;) Vonandi verða okkar kortum ekki lokað!! Svo kemur bara í ljós næstu mánaðarmót hvort maður fái lín lán eða hversu mikið það verður .. vonandi helst þetta bara eins og það hefur verið.

Jæja .. Best að tala um eitthvað annað en kreppuna, maður heyrir ekki talað um annað :d

Það er bara ljómandi gott að frétta af okkur hérna litlu fjölskyldunni .. Sigfús Viðar er alltaf jafn hress og kátur, er alveg eins og mamma sín!! Ljúfur sem lamb og sefur 6-7 tíma á nóttunni og mest af deginum, það er ekki hægt að hafa það betra, hann hefur þetta allt frá henni móður sinni og foreldrar mínir eru vitni um það ef einhver ætlar að böggast í mér (Magnús hehe) :haha:

Það er alveg merkilegt að þegar maður er svona heima hjá sér að dunda sér og svoleiðis að maður nennir hreinlegt ekki að taka til ...... :$ Ég fæ bara uppí kok þegar ég fer að vaska upp eða eitthvað, það er örugglega komið svona 5 cm lag af ryki á hillunum hérna :lol: Neinei segi svona, ástandið er ekki orðið svo slæmt!!

Magnús er í vetrarfríi í skólanum þessa vikuna, hann þarf nú samt að mæta eitthvað í skólann drengurinn .. Má nú ekki við öðru :d

Á laugardaginn var svo afmæli hjá Hirti Frey sem býr fyrir ofan okkur, svaka kræsingar þar á ferðinni mmmmm ... um kvöldið fórum við svo til Kidda og Hildar í Mosann, grilluðum þar og það var voða næs .. Vorum komin heim held ég um hálf 2 um nóttina :d
Síðan er það afmæli hjá Emil hérna á móti á sunnudaginn :d

Svo fara jólin bara að koma bráðum, en við komum heim í des. og það verður sko gaman!!! Hef ekki verið á Íslandi síðan í febrúar, eigum við að ræða það eitthvað! Ég held að það eigi eftir að verða pínu skrýtið að koma heim :d En fyrst og fremst mjög ljúft :d Ætlum að skíra Sigfús Viðar einhverntíman í des. erum ekki búin að festa dagsetninguna alveg, enda er það ekkert nauðsynlegt kannski strax :lol:

Sigfús Viðar er orðinn mjög spenntur að koma til Íslands (hann sagði mér það í dag) Svona spenntur með mömmu sinni sko :haha: Ég veit ekki hvernig þetta verður, Magnús fær bara að taka með sér jólaföt, nærföt og sokka hehehe því Sigfús Viðar hefur enga heimild á farangur og ég þarf nú að taka eitthvað með mér og ekki ætla ég að fara að borga yfirvigt ;) Það verður gaman þegar við förum að pakka niður hehe
Annars er farið að selja jóladót alveg á fullu hérna, kemur nú ekki til greina hjá mér að versla eitthvað svoleiðis, líður sko ekki eins og það séu að koma jól eitthvað bráðum!! Við höfum hvort sem er ekkert skreitt hérna og það breytist ekkert þessi jól :haha:

En nú þarf ég að fara að gefa gullinu mínu að borða

Blogga aftur seinna, lofa að það verður ekki eftir mánuð ;)


» 25 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 16:56:23 / Sigurbjörg

10. september

Ég er orðin lélegasti bloggarinn held ég bara :$
Prinsinn er auðvitað mættur á svæðið og ég hef ekki haft neinar fréttir handa ykkur síðan hann kom hehe

Jújú, mamma, pabbi & Viðar Örn fóru heim 25. ágúst .. Það var afskaplega leiðinlegt en eins og venjan er að þá var engin kveðjustund heldur bara sagt jæja sjáumst svo fljótlega .... Bara eins og þau byggu hér í næstu götu ;) Svoleiðis á það að vera! Við gerðum alveg heilan helling! Fórum til Þýskalands og versluðum þar alveg slatta ... Sigfús Viðar svaf alla leiðina niðureftir, vaknaði þegar við vorum að leggja bílnum, þar gaf ég honum að drekka og skipti á honum (það var kúkasprengja og hann skeit allan vagninn út hehehe) Síðan svaf hann allan leiðangurinn, gaf honum þegar við komum aftur í bílinn svo og hann svaf alla heimferðina ... Ekki hægt að biðja um það betra ;) Mamma varð reyndar veik og lá bara í 2 sólarhringa .. Magnús var svo að vinna eitthvað þannig að við, pabbi og Viddi reyndum að gera eitthvað :lol: Viðar fékk svo heila ferðatösku af Lego dóti, hann er svo flinkur að gera Lego!
Hann var svo fyrir því óláni þegar ég, mamma og hann fórum að ná í pizzu.. Hann fór á hjólaskónum og datt svona rosalega aftur fyrir sig og hendin varð undir þannig að hún beyglaðist öll :| Pabbi og Magnús fóru með hann á Slysó og þá var hendin bara brotin og litla skinnið var lagður inn :( Ekkert voðalega gaman en pabbi fékk að gista hjá honum og hann kom svo heim daginn eftir greyið með spelku og með hendina í fatla.
Magnús var svo með þeim uppá spítala, tala við læknana og aðstoða eins og hann gat, var hreint æðislegur :d
Síðan til að toppa þetta fék Magnús Vírusinn sem hann fékk seinustu jól ... lá í bælinu í nokkra daga! Ekki gaman og honum leið sko ekki vel :( Þetta er hreinasti viðbjóður og guð hvað ég vorkenndi elskunni minni :| Ég fer með hann beinustu leið upp á spítala ef þetta kemur fyrir aftur!

Þau flugu svo frá Billund þannig að Magnús skutlaði þeim og náði í mömmu sína í leiðinni ... Hún kom bara með sömu vél og mamma og pabbi fóru í heim :d Hún fór svo heim 30. ágúst og við reyndum nú að gera eitthvað, fórum auðvitað í bæinn og svoleiðis .. Miðaldarhátíðin var þá helgi og svo fóru þau mæðgin til Þýskalands. Við fengum gjafir sem voru allar æðislegar :d Viljum þakka kærlega fyrir okkur!!

Takk fyrir komuna og fyrir okkur!! Hlökkum til að sjá ykkur fljótlega :d

Annars er búið að ganga vel að vera svona 3 :d Það var mjög skrýtið fyrst eftir að þau fóru en mér fannst það samt sem áður bara fínt .. Þó svo að maður sakni þeirra auðvitað mikið að þá var það fínt en samt skrýtið að vera svona 3 hehe Magnús er að standa sig með prýði í þessu hlutverki (enda á hann nú 2 börn fyrir þannig að það er eins gott að hann kunni eitthvað!) :haha: Þeir eru bara draumur í dós þessir tveir ;)

Guðbjörg og Íris eru svo fluttar hingað út og byrjaðar í Byggingafræðinni ;) Voða gaman að hafa þær hérna :d

Svo er ég að hugsa um að koma heim á undan Magnúsi, er ekki alveg búin að ákveða 100% en það kemur í ljós bara seinna hvenær það verður ..

Jæja ég hef ekkert meira að segja í bili svo ég muni eftir :d Blogga aftur eftir mánuð hehehe ;)


» 16 hafa sagt sína skoðun

09.08.2008 11:35:02 / Sigurbjörg

Drengurinn mættur :)

Takk allir fyrir kveðjurnar :d Ekkert smá gaman að lesa þær allar, tók alveg smá tíma á barnalandi, var bara að klára það núna :d

En eins og ég skrifaði í síðasta bloggi að þá fór ég í skoðun 7. ágúst, í fyrradag ... Sigrún var svo yndisleg að vera með Hlyn fyrir okkur, Magnús var að vinna og ég fór á spítalann :d Þar fór ég í blóðprufu sem kom allt vel út, blóðþrýstingurinn var hár eins og hann er búinn að vera ... og svo var eggjahvíta í þvaginu :whut: Það var þá ákveðið um 5 eða 6 leytið að setja mig af stað, Magnús kom til mín strax eftir vinnuna og var hjá mér á meðan :d Það tók enga stund, ein pilla og málið var dautt en samt ekki alveg ... :$ Ljósmóðirin vildi endilega leggja mig inn 8| Ég var ekki alveg á því, mamma og pabbi að koma um kvöldið og ég vildi bara fara heim og heimtaði það eiginlega hehe en ég fékk það svo á endanum með því skilyrði að ég myndi fara heim, uppí rúm, draga fyrir, ekkert sjónvarp og ekkert lesefni :lol: Ja hérna við fórum heim svo, náðum í Hlyn og Sigrún og Ari voru búin að panta pizzu og buðu okkur í :d Það var yndislegt!!
Ég dreif mig svo uppí rúm, þorði nú ekki öðru ;)
Klukkan 25 min. yfir 8 fann ég eitthvað springa og allt varð hundrennandi ..... Ég öskraði á Magnús og þá var bara vatnið farið og ég hringdi strax uppá deild og ég átti að koma einn tveir og bingó!! Sigrún og Ari björguðu okkur enn og aftur með Hlyn, veit ekki hvernig þetta hefði endað ef þau væru ekki hérna! Sigrún kom yfir og verkirnir hjá mér byrjuðu um leið og vatnið fór!! Sigrún greyið hehehe það var svo fyndið að sjá hana hehehe ég var svo að drepast og hún svo mikið krútt hehe

Við lögðum bílnum og ég byrjaði að labba upp að dyrum á spítalanum en ég gat það nú ekki þannig að Magnús hljóp inn og náði í hjólastól 8) Ég stóð þarna útá plani örugglega eins og ég veit ekki hvað hehehe fullt af fólki að glápa á mig :haha: Fórum með svo miklum flýti að við rétt tókum bara gemsana okkar með :s Ég var ekkert að spá enda var ég alveg að farast úr verkjum og Magnús taugum hehehe nei segi svona :haha: Aðal málið var nú myndavélin kannski, þannig að Magnús hringdi í Sigrúnu og hún fór heim og náði í vélina fyrir okkur svo við gætum nú tekið einhverjar myndir :d Bjargaði okkur enn og aftur :d
Við vorum svo látin inní biðherbergi .. Ég var sko ekki að fara að gera þetta fyrr en mútta kæmi, þau voru í lestinni og áttu að koma kl. 1!! Þar kastaði ég svo upp pizzunni :lol: Ljósmæðurnar komu svo inn og önnur þeirra var sú sem vildi að ég yrði lögð inn þarna um daginn :haha: Við fórum svo strax bara inná fæðingardeild, verkirnir voru bara none stop og svo kom þetta yndislega barn í heiminn 22:45 :d Ekki lengi að þessu, þó þetta hafi nú ekki verið það þægilegasta :d Hann var svo mældur eftir 2 tíma, 14 merkur og 52 cm :d Við vorum svo færð á "hótelið" sem var nú meiri kompan hehe en þar sváfu feðgarnir eins og grjót en ég náði nú bara klukkutíma, svaf milli 3 og 4! Svo um 9 leytið vildum við bara fara heim og það var ekkert mál, vorum komin hingað heim klukkan 10 og vöktum alla hehe
Það var æðislegt að koma heim, sá enga ástæðu fyrir að vera þarna uppfrá, vorum hvort sem er bara alein og engin að skipta sér af okkur. Það þurfti ekkert að sauma mig eða neitt þannig að við bara drifum okkur :d

En leiðinlegasta var þó að mamma og pabbi voru ekki komin .. En þau hafa bara lengri tíma til að vera hjá okkur þá í staðinn :d Magnús var líka alveg frábær, hjálpaði mér að anda og gerði allt eins vel og hann gat, sem var svo frábært ;)

Gærdeginum var svo eytt í slökun, Sigrún kom og kíkti á okkur og Magnús og pabbi fóru í búðarleiðangur hehe keyptu vagn og ýýýmislegt nytsamlegt :d Settu upp rúmið og gerðu allt klárt :d

Hann sefur eins og engill og það heyrist ekki í honum .. Gengur allt mjög vel, gæti ekki verið hamingjusamari með engilinn minn. Ég er bara ein heima með hann núna, Magnús, pabbi, Hlynur og Viðar fóru í Legoland og mútta í búðina :d

Takk aftur fyrir kveðjurnar :d Og sérstaklega til Sigrúnar og Ara sem eru svo yndisleg og hjálpsöm að bjarga okkur og nottla bara búa hérna við hliðiná okkur :haha:

Kv Sissa og lilli (sem fer að fá nafn bráðum ... SPENNÓ!!)


» 27 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 12:09:38 / Sigurbjörg

Jæja nú jæja

Nú er komið að smá fréttum :d

Mamma, pabbi og Viðar Örn koma á morgun!! Það er ólýsanleg tilfinning sem ég finn núna, hlakka svo til að sjá þau að ég held að ég hafi aldrei verið jafn spennt!! Ef þið kæmuð nú í heimsókn, eða mynduð labba hingað inn að þá er ekki að sjá að það er að koma barn eftir nokkra daga ...... Mig bráðvantar mömmu til að hjálpa mér og segja mér til hehehe það verður vonandi allt reddý um helgina, ekki seinna vænna kannski :haha: En þau lenda ekki fyrr en hálf 9 annað kvöld, geta tekið lest 21:40 og verða þá komin 10 min. í 1 ... Þannig að það er allur morgundagurinn eftir líka, þá hef ég smá tíma til að taka til ;)

Ég ætla að skrifa aðeins um bumbuna hérna, nenni ekki að fara á barnaland og skrifa þar ...
En ég fór semsagt til ljósmóður mánudaginn 28. júlí síðasta nema hvað að blóðþrýstingurinn var frekar hár hjá mér og hún vildi að ég myndi panta tíma hjá heimilislækninum mínum... Ok ég fór heim og hringdi daginn eftir (á þriðjudeginum) en doksi var og er í sumarfríi :$ Ég átti svo annan tíma pantaðan hjá ljósunni viku seinna (semsagt núna síðasta mánudag þann 4. ágúst) ég fór þá bara og sagði við hana að ég hafi ekki getað farið til heimilislæknisins útaf því að hann væri í sumarfríi... Allt í lagi með það sagði hún, hún mældi mig aftur og hann b.þrýstingurinn var bara sky high má eiginlega segja og hún vildi senda mig strax uppá fæðingardeild í skoðun þar! Ég var með Hlyn með mér og ég gat ekki reddað pössun eða neitt og hún skyldi það nú alveg þannig að hún sagði að ég mætti koma strax morguninn eftir EF ég skyldi fara heim og gera EKKI NEITT! :$ Ég fór þá heim og reyndi að hlýða þessum fyrirmælum, en börn eru börn og það þarf að hafa fyrir þeim og sinna þeim þannig að ég lá nú ekki uppí sófa allan tímann.....
Jæja Magnús tók sér þá frí í gær, og þeir fóru bara með mér uppá spítala .. Ég var sett strax í svona mónotor í klukkutíma eða svo, slakaði vel á hehe og það var allt í sóma með hjartsláttinn hjá litla, svo mældi hún þrýstinginn hjá mér og hann var smá hár en ekki eins og síðasta sem betur fer! Ég tók líka þvagprufu og það fannst eggjahvíta í því .. Og svo í lokin var ég send í blóðprufa 8| Ég átti svo að fara heim og slaka vel á bara, ég á svo að mæta aftur á morgun kl. hálf 1 .... Þá tala ég við einhvern lækni, veit ekkert hvað gerist svo :$

En já þetta var semsagt sjúkrasagan síðustu daga hehe annars líður mér bara fínt, litli er búinn að skorða sig alveg og ég finn aðallega bara smá þrýsting stundum en annars er ég bara í góðum gír :d

Svo fer Hlynur Smári til Íslands á mánudaginn .. Hann er nú farinn að sakna mömmu sinnar skiljanlega, það verður gaman fyrir hann að sjá hana :d Maður er nú alltaf soldið móðursjúkur hehe

Ég á svo ennþá eftir að þvo fötin sem ég er með hérna :$ Er alltaf á leiðinni en svo bara gerist ekki neitt :haha: Kannski ég geri það bara í dag

Ætlaði ekki að segja neitt meira held ég í bili .. Læt ykkur svo vita hvað gerist á morgun :d Ég setti svo inn nokkrar myndir á bl í gær

Kv Sissa


» 23 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 14:47:18 / Sigurbjörg

Úfff

Er ekki bannað með lögum að byrja að grafa og vinna fyrir utan húsið hjá manni fyrir 6 á morgnanna!!!!???? Greinilega ekki hér :^) Þetta er ekki normal sko, þetta er búið að vera svona alla vikuna og ég er að klikkast! Tók myndir í dag og þarf að setja þær inn hehehe
Morguninn og dagurinn hjá mér í dag er búinn að vera einstaklega skemmtilegur :$ Magnús fór út kl. 6 og þá voru þeir byrjaði að HAMAST hérna BEINT fyrir UTAN húsið! Við erum ekki að tala um eitthvað smá heldur bara gröfu og allan helvítis pakkann :klikk: Ég ætlaði bara að fara að sofa aftur eins og ég geri vanalega þegar hann fer í vinnuna, en NEI það var sko ekki SÉNS! Án gríns að þá var ég næstum því farin út og ætlaði að öskra á þessa fávita :lol: Ég lá semsagt bara og nötraði ... Svaf ekkert, svo vöknuðu þau um hálf 9, þá fór ég fram og setti mynd í tv ... svo morgunmat ... svo aðra mynd ... koll af kolli þar til ég gafst upp kl 11 án þess að hafa sofnað neitt og fór fram :klikk:
Ekki elska ég blakvöllinn hérna úti í garði eitthvað meira!! Krakkarnir fara út og inn alveg nokkrum sinnum á dag og þar af leiðandi stútfull af sandi ......... 8| Ég sópa svona 20 sinnum yfir daginn og ryksuga kannski svona 2 ... Alveg er ég komin með ógeð af þessum velli

Jæja nóg af kvarti og kveini

Nú eru akkúrat 2 vikur í mömmu, pabba og Vidda!! Við erum að tala um að spenningurinn sé í HÁMARKI .... Það verður yndislegt að fá þau, ég hringdi í vinnuna hennar mömmu í dag, fékk allt í einu svo mikið stresskast að ég réði ekki við mig 8| En við ræddum nú málin aðeins og ég gat eitthvað róast hehehe Svo fór ég í það að skrifa lista yfir það sem mig vantar strax, við þurfum að fara að fara í það allt saman :d Þetta verður drelli fínt bara

Ellý fer svo heim á fimmtudaginn næsta ... Þetta er orðinn fínn tími fyrir hana, og skiljanlega farin að langa heim :lol: Svo byrjaði nú sumarið hérna eiginlega bara í gær, búið að að vera bara rigning og ekkert spes veður (sem mér fannst reyndar bara fínt hehe) en nú er sko kominn hiti og sól ....... og ég hef ekki gert annað en að svitna hérna INNI, legg ekki í það að fara út, var úti í garði í gær í 3 tíma og var eins og ég veit ekki hvað í gærkvöldi :lol:

Við fórum svo á ströndina þegar Magnús kom heim í gær, kíktum aðeins fyrst góða veðrið lét sjá sig... reyndum að veiða krabba en það gekk ekkert :s Þeim fannst ekkert smá gaman, tók einhverjar myndir sem ég á eftir að setja inn

Jæja þá er ég búin að setja inn smá fréttir af okkur hérna :d Nú er bara að spóla 2 vikur fram í tímann, við erum að tala um það að ég hef ekki séð þau síðan alveg í byrjun febrúar!! Svo er mæðraskoðun á mánudaginn, best að gleyma henni ekki :haha:

Kveðja frá okkur öllum hérna til ykkar heima :d


» 19 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 14:38:54 / Sigurbjörg

Mánudagur

Jæja þá er best að blogga eitthvað, svo þetta deyji nú ekki bara út hjá mér ... Ég hef aldrei neitt að segja hvort sem er, bulla bara eitthvað!

En fattarinn er sko ekki í lagi hjá manni þessa dagana!! Og minnið .. :$ Ég átti tíma hjá ljósmóður í morgun, svo var mamma að spurja mig áðan hvernig gekk og ég bara haaaaaa hvaða skoðun :$ Díses þá gleymdi ég bara gjörsamlega að fara og að ég átti tíma og allt!! Svona er nú lífið með 2 börn og óléttan að fara með mann, maður hugsar ekki mikið þá hehehe

Annars náðum við í Hlyn Smára á laugardaginn til Köben .. Ekkert voðalega skemmtileg lestarferð, en hún var samt fljót að líða sem betur fer :d Stoppuðum svo þar í rúma 3 tíma og höfðum náttúrulega ekkert að gera :$ Hittum Hlyn strax á lestarstöðinni, fórum með þau bara niður og upp Strikið ...... Mamma hans og kærastinn hennar gáfu okkur svo rosalega flottan náttgalla, alveg æðislegur og ég var bara eiginlega orðlaus hehe
Ég var svo GJÖRSAMLEGA búin á því þegar við vorum að fara í lestina heim kl 19 að það var ekkert eðlilegt!! Hélt að lappirnar á mér ætluðu að gefa sig, já þetta var erfitt :haha: Það var æðislegt að koma heim svo um 22, krakkarnir fóru strax í sturtu og beint í bælið og rotuðust þar :lol: Anna sótti okkur og stoppaði svo í smástund :d

Magnús byrjaði svo að vinna í dag hjá pípara :d Við erum auðvitað í skýjunum, fá smá pening og svona... Hann er að vinna með Stefáni sem vann með honum á Akureyri, og hann þarf að keyra til Arhus alltaf, en hann fær bíl þannig að það verður bara í góðu lagi :d Ætti að vera vanur eftir að hafa alltaf farið í fyrrasumar alla leiðina á Akranes og stundum Borgarnes :d Krakkarnir voru dugleg að leika sér úti í garði í dag, og við erum bara búin að hafa það huggulegt

Svo fer að styttast í að litla krílið láti sjá sig .... Það verður bara frábært, hann er búinn að vera pínu erfiður síðasta mánuðinn eða svo, liggur alltaf hægra megin og spyrnir þar í alveg eins og hann fái borgað fyrir það :d Hægri hliðin er alveg off hjá mér heheh og svo þegar mér er illt í bakinu að þá er það alltaf hægra megin bara :lol: Þetta er sérstaklega vont á kvöldin, þá þarf ég að leggjast á vinstri hliðina til að fá hann til að færa sig, eða bara ýta honum einhvernvegin

Ég er svo að reyna að vera dugleg að taka myndir og set þær á Bl síðuna :d

Nú fer húsbóndinn að koma heim, búin að taka allt til svo það verði nú fínt þegar hann mætir á svæðið ;)

Þreytta húsmóðirin kveður að sinni :haha:


» 27 hafa sagt sína skoðun

02.07.2008 10:52:48 / Sigurbjörg

Ýmislegt sem manni langar ...

- Mig langar að fara í útilegu!! :( Sofa í tjaldi, hafa gaman og vera með fullt af fólki

- Mig langar á Hátíð á Höfn .. Allt of langt síðan ég fór seinast, missti af henni í fyrra og ætla EKKI að missa af henni næst :^)

- Langar til Íslands!! Ég þrái ekkert heitar en að komast heim .... Svo margir að fara heim núna yfir sumarið :| Dem it nema ég

- Langar að djamma, á Akureyri, Reykjavík .. með stelpunum, hitta þær og hafa gaman

- Fara í ísbíltúr ...... langar í BRAGÐAREF, DJÚPSTEIKTA PULSU MEÐ OSTI OG KRYDDI OG LÚGU HAMBORGARA

- Langar í mömmumat mmmmmmmm best í heimi

- Langar að knúsa Vidda, þetta barn er svo best og djö hvað ég sakna hans!

- Langar að hitta Mæju og alla hina ....

- Ógeðslega langar mig í útilegu!!!!!!!! :^)

- Hlakka til þegar lilli verður kominn í heiminn, ég er orðin svo þreytt á þessu :cry:

- Langar bara til ÍSLANDS fjandinn hafi það!!!!!!!! :evil:

- Langar í fólkið mitt .....

- HLAKKA TIL AÐ KOMA HEIM

- Ég höndla þetta ekki lengur ... Hver vill bjóða mér heim?? 8)

- Sumarþunglyndi alveg að gera útaf við mig ...... Þoli ekki svona daga!!! :whut:


» 28 hafa sagt sína skoðun

29.06.2008 19:44:49 / Sigurbjörg

Sunnudagur

Úff ég veit aldrei hvað ég á að skrifa hérna ... Finnst alltaf eins og ég segi bara það sama í hverju bloggi :lol:

Allt gott að frétta héðan eins og alltaf bara ... Ellý búin að vera hjá okkur í viku og það hefur auðvitað verið voða stuð og gaman hjá okkur :d Nema hvað við eldum alltaf svo vondan og ómögulegan kvöldmat :$ Hakk og spaghetti, kínarúllur og aspassúpa og brauð hefur ekki verið borðað t.d. hehehe fyrsta spurningin sem við fáum liggur við á daginn er "hvað er í matinn í kvöld?" veit hreinlega ekki hvað maður á að hafa, það er allt vont 8|

Helgin hjá okkur er búin að vera mjög fín og róleg bara.. Erum bara búin að hafa það notalegt og húsbóndinn tók sig til og setti parketið á inní herbergi ;) Það er nottla allt annað að sjá þarna inn!! Bara flott og ánægð með stráksa :d Þannig að núna er allt orðið fínt á heimilinu, komin með kommóðu líka inní stofu :d Er aðeins búin að setja í hana ;) Nú eru engar framkvæmdir sem bíða ;) Skelli inn myndum á Bl fyrir ykkur

Ég veit ekkert hvað ég get skrifað meira :$ Það er ekkert að frétta, nema ég þarf að fara til doksa á þriðjudaginn útaf of háum blóðþrýsting.. Vonandi verður hann kominn í lag og allt sé í lagi :d Ég þarf líka að tala við hann í sambandi við náladofann sem ég er með, er búin að vera með náladofa efst á maganum í viku, mjög óþægilegt :( En það kemur í ljós, get nú bloggað hvernig sú ferð fer ;)

Hilsen Sissa


» 21 hafa sagt sína skoðun

19.06.2008 11:50:22 / Sigurbjörg

Fimmtudagur

Vá hvað ég er búin að vera léleg að blogga :$ Hef eiginlega ekkert verið í tölvunni seinustu 2 eða 3 vikur og hef þá ekkert nennt að skrifa hingað inn .. :d

Bjössi kom til okkar 2. júní og var hjá okkur í 2 vikur .. Rosalega gaman að fá hann í heimsókn :d Fyrri vikan var gjörsamlega STEIK!! Það var svo heitt að það var varla hægt að vera úti :haha: En við fórum samt í Ljónagarðinn sem er hérna rétt hjá, þetta er svona Safari garður, mjög skemmtilegur en það var bara eiginlega alltof heitt 8| Keyrðum svo í gegnum ljónin og það mátti sko ALLS EKKI opna rúðurnar, en við stálumst stundum til að setja smá rifu á 8) Það var annaðhvort að drepast úr hita eða vera drepin af ljónunum :lol: Við fengum svo aldeilis að heyra það þegar við keyrðum út, það sást til okkar og við vorum aðeins skömmuð fyrir það :| Við fórum svo líka á ströndina, skruppum til Þýskalands sem var mjög skemmtileg ferð heheheh Magnús er svo góður að rata og muna að það er ekkert eðlilegt!! Ætli hann muni eftir að hann eigi afmæli á morgun?? :haha:

Hjúkkurnar, leikskólakennararnir og ljósmæður eru svo loksins hættar í verkfalli!! Vúhú :haha: Loksins loksins ... Við erum búin að vera á flækingi síðustu daga og í gær að tala við fullt af pípurum og athuga hvort þeim vanti starfsmann í júlí fyrir Magnús, erum búin að fá góð viðbrögð og við vonum það besta :d Svo mundi ég allt í einu eftir að það er hægt að skoða fæðingardeildina á miðvikudögum kl. 3 (sénsinn að Magnús hafi nú munað það) :lol: þannig að við fórum og kíktum á það :d Ég fékk nú eiginlega frekar mikið í magann sko... Einhvernvegin var ég búin að ímynda mér stofurnar miklu stærri ........... En við fengum helling af upplýsingum og svona sem var mjög gagnlegt ;) Vitum hvað við eigum að gera ef við komum um nótt og svo framvegis :haha:

Magnús minn á svo afmæli á morgun, spurning hvort hann fái einhvern pakka eða eitthvað gott að éta hehehe ;) Ef Guð lofar fer svo parketið á svefnherbergið um helgina ... Er orðin pínu þreytt á að hafa það hérna inní stofu :^) Vil helst fá einhverja aðra mublu en stafla af parketi þarna í staðinn :haha: Þarf að fara að koma fötunum hans Lilla einhversstaðar fyrir!!

Svo eru bara 4 dagar í Ellý Sæunni :haha::haha: Vá hvað það verður gaman að fá hana!! Við erum orðin svo spennt að við ráðum ekki við okkur :lol: Þá er það ekkert meira bara ég og Magnús ;) Geggjó!! Eigum ekki eftir að sakna þess þegar maður á svona gullmola eins og þau :d Náum í hana til Billund í hádeginu á mánudaginn .... :haha:

Mæja og co eru svo komin heim frá Búlgó!! Ekkert smá brún og sæt ;) Allavega sýnist mér það á msn myndinni hehehe Ég er farin að sakna þeirra svo mikið, og bara ÍSLANDS!! Ohhh væri alveg til í að koma aðeins heim í sumar :cry: En ég ætla að reyna að koma heim á undan Magnúsi, skólinn er búinn svo seint held ég (um 20.des.) og mér finnst það frekar langt 8| Erum ekkert búin að ákveða neitt með hann en ég ætla að reyna að koma í enda nóv./byrjun des. :haha: Ekki nema rúmir 5 mánuðir!!!! :$
Langar svo að komast í almennilega SUNDLAUG :^) Er búin að vera að drepast í bakinu núna í nokkuð marga daga, er ekki enn búin að fara í sund (kostar 40 dkr fyrir manninn) Sem er 682 íslenskar krónur takk fyrir!! En við eigum eftir að vera dugleg að fara með Ellý, eins og við erum alltaf :d

Ég held ég hafi ekki fleiri fréttir í bili... Reyni að vera dugleg að blogga núna svo þið getið fylgst með og svona ;)

Hilsen Sigurbjörg


» 21 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 11:27:42 / Sigurbjörg

25. maí

Í gær, 25. maí átti elsku besti stóri strákurinn minn afmæli, orðinn 7 ára! :d



Ég hringdi í hann í gær og það fyrsta sem hann sagði við mig var: Ert búin að fæða barnið? :lol::lol: Hehehe hann er svo mikill snillingur :haha: Ég sagði nú við hann að hann myndi vera hérna þegar barnið kæmi .. ;) En hann varð semsagt 7 ára í gær, fékk svaka flott hjól frá ömmu sinni og afa :d

Svo var mamma hans, Mæja að brillera í skólanum sínum á laugardaginn, kláraði þá önnina með glæsibrag, ekki að spyrja að öðru ;) Svo fór mamma og pabbi suður og var hjá þeim, frekar mikil öfund í gangi og soldið mikil heimþrá .. En ég tók það út og við þrifum íbúðina frá A-Ö og hún er ekkert smá hrein og fín núna :d Vorum bara allan gærdaginn að, ekkert smá dugleg sko!!

En núna er júní bara að fara að koma .. Tíminn styttist alltaf, er orðin spennt að koma heim með litla guttann, vorum aðeins að skipuleggja hvernig þetta á að vera inní herbergi í gær, bara gaman að því, maður verður að hafa eitthvað að gera :haha:

Guðbjörg hringdi í mig í morgun og sagðist vera komin með íbúð hérna, ekkert smá spennó!! Ég hlakka svooooooooooooo til að fá hana hingað :haha: Bara skemmtilegir tímar framundan !!!

Ætla að fara og fá mér að spise og horfa á Dr. Phil ;)

Sigurbjörg


» 20 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 11:26:25 / Sigurbjörg

20. maí

Enn eitt afmælisbarnið í dag :d Engin önnur en skvísan okkar Ellý Sæunn er 6 ára í dag :d 



Nú erum við bara að bíða eftir að fá hana til okkar ... Kemur 23. júní :d

Jæja svo var Unnsa náttúrulega hérna hjá okkur í nokkra daga :d Það var auðvitað ótrúlega gaman að hafa hana og vonandi skemmti hún sér vel líka 8) Ég fór til Köben á fimmtudaginn og tók á móti henni, eða átti að taka á móti henni en lestin var pínu sein þannig að hún þurfti að bíða smávegis ;) Svo fórum við inní Köben, röltum þar um í blíðunni :haha: Fórum í nokkrar búðir á Strikinu og svona ;) Þá aðallega H&M :lol: Þar var smá verslað og svo fórum við bara í lestina... Vorum komin hingað til Horsens um 10 leytið ... Byrjuðum strax á að skoða allt dótið sem hún kom með!! Jiii minn eini sko, hef aldrei séð svona mikið fyrr, ég fékk bara sjokk 8| Hún keypti meðal annars 66 gr. norður galla og ég veit ekki hvað og hvað!!!!!! Svo kom hún með pakka frá Sollu og Helgu :haha: Vá þetta var bara æðislegt og TAKK ÆÐISLEGA FYRIR ALLT ÞETTA! Ég er ekkert smá þakklát og ánægð með þetta dót :d Setti myndir inná bl síðuna

Svo var það bærinn hérna á föstudeginum ... Þá var líka slatti verslað og svona :d Ég endurnýjaði make up draslið mitt hehehe sem veitti ekki af!!!! :haha: Svo elduðum við dýrindis kjúllarétt og Magnús fór að vinna á skólabarnum þannig að við vorum bara að dúlla okkur hérna, fórum í sturtu og sjænuðum okkur heldur betur til!! Það var smá kennsla í make up-i sem tókst bara þrælvel held ég ;) Fórum svo á skólabarinn og vorum þar alveg til 3 þar til það lokaði :haha: Engin smá dugnaður í gangi sko hehe og ekki nóg með það að við fórum svo í bæinn líka! Hittum Sigrúnu þar, kíktum á 2 staði og fórum svo og fengum okkur pizzu með káli hehe ;) Vorum svo komin hingað heim dauðþreytt um 5 held ég :d 



Á leiðinni á skólabarinn .. Aðeins að heyra í Steina fyrst ;)



Ég reddy á barinn



Allt að gerast í myndatökunum hehehe Vorum búnar að taka slatta en Unnur alltaf ósátt þannig að ég varð að skemma eina ;)





Jæja þetta er komið gott :haha:



Maggi mega að vinna á barnum :d



Komin á skólabarinn :d



Vorum að reyna að taka myndir af hallærislegum klæðaburði hjá einni stelpu hehehe

Fórum svo í bæinn á laugardeginum .. Unnur þurfti að skila smá í H&M hehe var ekki alveg með fulle fem þarna í Köben greinilega :haha: Grilluðum svo um kvöldið .. Fórum svo í heimsókn til Sigrúnar, sátum þar og spjölluðum og fórum svo heim að éta nammi og horfa á bíómyndir :d

Sunnudagurinn var líka tekinn í leti .. Það var bara mjög fínt :d Vöknuðum svo snemma á mánudaginn til að fara uppá lestarstöð ... Unnur bað mig um að stilla vekjaraklukkuna á 7, hún ætlaði líka að gera það :haha: Hún tvístillti hana alveg hahaha svo fór ég á fætur kl. 7 og hún lá bara enn uppí sófa og ekkert að stressa sig því klukkan var bara 5 hjá henni!!! :lol::lol: Hún skildi ekkert í mér :haha: En þá var hún nottla ekkert búin að breyta klukkunni hjá sér hehehe eins gott að ég stillti mína ;) En hún náði auðvitað lestinni og er komin heil heim núna :haha:

Takk fyrir frábæra og yndislega ferð :haha: Hver ætlar svo að vera næstur?? ;)

Nú er ég búin að vera heillengi að blogga þetta, og ætla að segja þetta gott núna í bili :d Held að ég sé ekki að gleyma neinu .. :$ Þá kemur það bara í næsta bloggi :d Ég setti svo nokkrar myndir inná myspace í gær .. Bara svona smá

Kv Sigurbjörg


» 20 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 13:54:55 / Sigurbjörg

11. og 12. maí

Hlynur Smári STÓRI strákurinn okkar er 4 ára í dag :d Okkur hlakkar svo til að fá snúðinn til okkar í júlí .. :d Jibbí jibbí ;) Hann var ánægður með gjöfina frá okkur stórfjölskyldunni hehe fékk rosa flottan traktor, hann er svo mikill sveitakall og það þýðir ekkert að gefa honum hvað sem er :lol: Svo fær hann Batman afmæli hjá mömmu sinni, ótrúlega heppinn :d



Dúllan :d

Annars er allt voða gott að frétta héðan .... 24 stiga hiti í dag og ég get svo svarið það að ég kafna bara ef ég fer út!! Labbaði í búðina áðan og ég get svo svarið það, það lak liggur við af mér svitinn 8| Við ætluðum að fara á ströndina í dag með Lenu og Stebba í Aarhus, en Magnús fann sér eitthvað annað að gera, fór á einhvern fótboltaleik.. :klikk: Vonandi brennur hann þar bara og kemur sárkvalinn heim hehehe :lol: Segi svona!!!

Við grilluðum svo öll saman hérna útí garði á föstudaginn, rosa gaman og heitt náttúrulega ;) Eftir matinn fóru sttrákarnir í blak, voða stuð hjá þeim! Magnús er orðinn veeeel brúnn og sætur eftir sólina, fór líka í golf og fékk ágætislit þar :d Kannski ég setji inn myndir á Bl af grillinu

Svo er náttúrulega stórfréttin sú að Unnur nokkur Sveinsdóttir er að mæta til MÍN á FIMMTUDAGINN NÆSTKOMANDI!!! Gríðarlega spenna í gangi hérna, og eftir pökkunum auðvitað :haha: Ég þarf að sækja skoffínið til Köben og ætlum að gera okkur glaðan dag þar saman skvísurnar .. Höfum ekki verið saman þar síðan 2001 ;) Þurfum að fara að rifja það upp hehehe hún er líka búin að lofa því að keyra mig um í hjólastól ef ég get ekki gengið lengur hahaha :lol: Það verður æðislegt að fá hana til mín, vonandi verður veðrið svona geggjað þá líka :haha::haha:

Það er annað afmælisbarn, en hún á ekki afmæli fyrr en á morgun reyndar hehehe en það er hún elsku besta, sæta og yndislega systir mín :haha: Markaðsfræðisnillingurinn sjálfur ;) 

dökkt

Afmælisbarn morgundagsins, 12. maí :haha:
Ég á nú eftir að tala við hana á morgun ;)

Sigrún og Ari voru svo að flytja hingað á kollegi-ið :haha: Mjög gaman að fá þau hingað ;) Ég fór til hennar á föstudaginn, hjálpaði henni aðeins þá að pakka og svona, fórum svo með smá dót hingað yfir :d Ég fór svo aftur til hennar í gær, gerðum alveg fullt, stútfylltum bílinn okkar og það var eiginlega allt komið til þeirra í gærkvöldi :d Þetta á eftir að vera rosa flott og kósý hjá þeim ;) Þau gistu svo fyrstu nóttina í gærkvöldi, laugardagur til lukku eins og sagt er :haha:

Bið að heilsa ykkur í bili :d



Bumbulínan ;)


» 25 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 12:29:35 / Sigurbjörg

Nú fer ég endanlega úr límingunum!!

17 dagar í Unni, tíminn flýgur alveg áfram finnst mér :d Sem er mjög gott!! Hlakka til að fá skottuna, ég er orðin alltof spennt sko :haha:

Svo var mamma að segja mér áðan að þau ætla að koma 8. ágúst og vera í 2 vikur :haha::haha: Nú þarf ég virkilega að fá mér eina Paxal!! :lol: Ohh það verður svo gaman!! Þau ætla að vera í íbúð hérna í næsta stigagangi, þannig að það verður bara hlaupið á milli :haha: Ég efast um að litli snúðurinn minn komi eitthvað fyrir áætlaðan tíma og vonandi verður hann bara á tíma, það væri náttúrulega langbest :d Er ekkert spennt yfir því að fá hann seint og hafa ekki múttu hérna ... þannig að hann má vinsamlegast koma bara ekki seinna en 10. :d 

Svo er Ellý að koma til okkar í sumar, það er ekki alveg búið að negla dagsetningu en hún kemur litla skottan og við getum bara ekki beðið eftir henni :d Hún flýgur vonandi til Billund, styttra flug og styttra að ná í hana, bara 20 min. að keyra :d Hún er líka búin að finna nafn á lilla, sagði við mig og Magnús að henni litist vel á nafnið Snúður hehehe veit ekki aaalveg með það :haha: Ætli við finnum ekki eitthvað annað en dýranafn ;) Hún er svo fyndin!

Það var frekar heitur dagur í gær! 19 stiga hiti og það var geggjað að fara út og finna heitan blástur, bara eins og maður væri á Spáni að kvöldi til svei mér þá 8) Löbbuðum í búðina og svo bauð Þórir okkur í mat, það var ekkert annað í stöðunni en að labba (tekur 10-15 min.) og við vorum aðeins lengur.. Fórum heim um 10 og þá var ennþá mjög gott veður :d Annars var spá rigningu í dag og ég hef ekkert séð neitt af henni ennþá allavega

Við héldum stelpukvöld svo á fimmtudaginn síðasta, Lára var að flytja við hliðiná barnum í aðeins stærra húsnæði heldur en herbergið :d Hófý gjörsamlega tapaði sér í eldhúsinu:lol: Gerði alveg dýrindis kjúllabringur og svo var Sigrún með bernessósuna sína ;) Svo gerði Hófý köku og ég gerði súkkulaði köku, horfðum svo á Top Model og Project Catwalk, voða gaman :d
Hófý átti svo afmæli á laugardaginn, skvísan bara búin að ná mér ;) Orðin 22!! Hún bauð mér og Láru á Jensen sem var auðvitað alveg geggjað gott!! Fórum svo aðeins heim til Láru og ég keyrði þeim svo í bæinn og ég fór til Magnúsar þar sem hann var að passa fyrir vinafólk okkar, vorum ekki komin heim fyrr en 5 :d

Ég þarf að fara að róa mig niður ..... Það er svo margt að gerast að ég þarf að fara í smá slökun :haha: Ohhh hlakka svo til að fá mömmu og pabba!!! :haha::haha:

Blogga aftur síðar :d

Kv Sissa og Snúður hehehe


» 22 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 10:21:31 / Sigurbjörg

Bænadagurinn

Í dag er Bænadagurinn, einhver danskur helgidagur sem kemur fjórða föstudag eftir páska .. Og svo er einhver saga sem ég nenni ekki að segja hehe eða þýða réttara sagt :d Getið googlað Bededag og lesið ;)

Ég held svei mér þá að vorið sé komið!! Ohh það er búið að vera meiriháttar veður hérna í marga daga, alveg æðislegt :haha: Núna er sko sól og 9 stiga hiti 8) Bara mega veður ... Ætli ég og Unnur eigum ekki eftir að geta farið í sólbað bara hehe
Vorum svo að kaupa okkur sófa í gær :haha: SVEFNsófa þannig að Unnur getur bara verið í honum ;) Ætluðum að kaupa sófasett sem við vorum búin að finna en stofan okkar er svo lítil að ég nenni lengur að hafa eitthvað svaka sófasett hérna! Ætlum að kaupa okkur bara áður en við flytjum heim .. Svo kemur kommóða hingað inn sem ég ætla að setja einhver föt í af lilla þannig að það verður að vera pláss hérna inni :d Svo verður vaggan hérna inni og svona þannig að við erum bara mjööög sátt með kaupin ;)

Annars kom Hófý til mín í gær og litaði á mér hárið!! Mér til mikillar ánægju :haha: Hárið á mér var að verða fjólublátt án gríns eftir að Magnús litaði það :lol: Ætli ég taki ekki bumbumyndir um helgina og þá getið þið séð :d En þetta er allt annað líf sko, miklu betra og flottara heldur en það rauða/fjólubláa 8| :p
Svo kom Sigrún um 8 leytið og við ætluðum að horfa á Top Model og fara svo á skólabarinn en ég var á fullu að gera mig til þannig að ég missti af þættinum alveg hehe því við ætluðum á barinn hálf 10 ;) Það var sko einhver kallstrippari .. en það voru svo margar stelpur að ég sá bara ekki NEITT !! Bara andlitið á honum, þannig að þetta var ekkert merkilegt hehe
Það var mjög gaman á skólabarnum :d Komum svo hingað heim um 1 minnir mig og stelpurnar fóru á P3 sem er staður við hliðiná barnum að dansa um 3 leytið (eða ég held allavega að þær fóru þangað) :haha: 

27 dagar í Unnsu!! Ert hætt að telja kannski hehe ;) Ohhhh æði æði æði djöfull hlakka ég til :haha: Svo kemur Guðbjörg 16. ágúst :haha::haha:

Svo á ég tíma hjá ljósmóðir 5. maí - Og Gunna hérna á móti átti tíma í gær en var frestað honum vegna þess að leikskólakennarar, ljósmæður og eitthvað er í verkfalli!! Og kannski leysist það ekkert strax, hef heyrt að það gæti staðið fram í ágúst :o Þannig að það kemur í ljós hvort það verði leyst þegar ég á tímann.... Annars þarf ég að panta tíma hjá heimilislækninum mínum, þarf að athuga þyngd og fleira náttúrulega - Við vonum það besta bara

Ætla að reyna að vekja Magnús svo hann sofi nú ekki bara í allan dag! 8| Hann var að presentera eða með fyrirlestur í skólanum í gær með grúbbunni sinni, svo það var fagnað því í gær auðvitað :)

Góða helgi allir :d

Sissa


» 24 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 09:43:23 / Sigurbjörg

Fimmtudagur

Langaði að skrifa nokkur orð ..

Hún María frænka mín, eða Mæja gamla eins og við sögðum oftast, lést í fyrradag .. Henni líður betur á þeim stað sem hún er komin á núna og það er vel tekið á móti henni, við vitum það ... Guð geymi hana og varðveiti, hugsa til ykkar heima



Heimþráin eykst alltaf um helming þegar maður fær leiðinlegar fréttir að heiman, ekki eins og það sé oft að gerast, eins og þegar Brandur frændi minn dó og eins með afa hans Magnúsar, manni finnst maður vera svoo langt í burtu :$ Ææ manni langar að vera nærri, það er ekki langt eftir af okkar ferðalagi hér :)


» 24 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Klukkan
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 30 október